Mót á Laugum
07.júlí 2009 - Kristján Ævarsson - Athugasemdir (4)

Óli frændi kom með í ferðina sem hófst á föstudag og komum við á svæðið um kl 20. Tek það fram að þetta var síðasta helgin í júní. Laugadagurinn var góður, fórum í sund, pétur að keppa og svo brunað heim. 2 vindsængur af 3 vildu ekki halda lofti og því var sofið á jörðinni kvöldið áður og meirihlutinn vildi frekar rúmið sitt heldur en grasið fyrir nótt nr 2. Ég og Pétur fórum svo daginn eftir aftur á svæðið þar sem Pétur lauk þátttöku. Gæjinn kom heim með gullpening í 4*100m boðhlaupi.


