Ættarmót
24.júlí 2009 - Kristján Ævarsson - Athugasemdir (0)

Fólkið sem var þarna saman komið eru niðjar Ólafs og Halldóru í Kolsvík. Fyrir þá sem ekki þekkja nægilega til þá er þetta: Anna Katrín -> Harpa -> Óli
Mótið var mjög skemmtilegt og heppnaðist vel. Stjórnin búinn að græja alla hluti og það sem stóð upp úr hjá okkur var ratleikurinn. En þessi leikur var þannig að skipt var í 6 til 8 manna lið. Hópurin fékk vísbendingu sem vístaði á 7 spurningar, sem svo vísaði á næstu 7 spurningar o.s.frv. Auðvitað svöruðum við flestum réttum og fengum gullpening fyrir.
Maturinn á laugadag var frábær og sjaldan sem maður fær svona gott þegar verið er að elda ofan í hóp.



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.